Fotbolti.net
23.01.09 - 15:36
Magnús Már Einarsson

Mido til Wigan á láni (Staðfest)

Mido til Wigan á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hefur fengið Mido framherja Middlesbrough á láni út tímabilið.
Wigan fékk leyfi til að ræða við Mido í gær og hann hefur nú skrifað undir lánssamninginn.

Mido gæti þurft að leysa Emile Heskey af hólmi hjá Wigan en eins og komið hefur fram gæti hann verið á leið til Aston Villa.

Mido er ekki að skipta í fyrsta skipti um félag því hann hefur einnig leikið með Ajax, Celta Vigo, Marseille, Roma og Tottenham á ferli sínum.

Middlesbrough fékk Marlon King á láni frá Wigan í gær en Gareth Southgate stjóri Boro segir þó að þessir samningar tengist ekkert.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.