Fotbolti.net
23.01.10 - 20:50
Hafliði Breiðfjörð

Ruud van Nistelrooy til Hamburg (Staðfest)

Nistelrooy valdi Hamburg.

Nistelrooy valdi Hamburg.

Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy er genginn til liðs við Hamburg í Þýskalandi frá Real Madrid.
Ljóst var að Nistelrooy myndi yfirgefa spænska félagið í janúar og hann var orðaður við fjölda liða, meðal annars á Englandi enda mikill markahrókur.

Hann var meðal annars orðaður við West Ham, Tottenham og Stoke en ensku félögin urðu af því að næla í hann þar sem hann valdi Þýskaland.

Nistelrooy sem er 33 ára gamall fór í læknisskoðun hjá Hamburg í dag og skrifaði svo undir eins og hálfs árs samning við félagið.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.