23.01.10 - 21:02
Hafliði Breiðfjörð
Marco Ruben til Wigan (Staðfest)

Ruben í leik með Recreativo.

Mynd: Getty Images

Ruben í leik með Recreativo.

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Villarreal sagðist í kvöld hafa komist að samkomulagi við Wigan um að selja þeim framherjann Marco Ruben.
Argentínumaðurinn er 23 ára gamall og hefur spilað með B-liði Villarreal í spænsku 2. deildinni á þessari leiktíð.
Hann hafði komið til Villarreal frá River Plate í heimalandi sínu í janúar árið 2008 og spilaði næstu 18 mánuði á láni hjá Recreativo Huelva sem svo féll á síðasta ári.
Hann hefur áður spilað með Rosario Central í Argentínu. Hann skoraði 9 mörk með B-liði Villarreal á tímabilinu.
Wigan er þremur stigum frá fallsæti og er einnig talið vera eitt af mörgum félögum sem vilja fá Kris Boyd frá Rangers.

Heimild: BBC