Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. janúar 2021 06:00
Victor Pálsson
Segir að Rudiger sé ekki nógu góður fyrir Chelsea
Mynd: Twitter
Antonio Rudiger er ekki nógu góður til að spila fyrir Chelsea að sögn Mark Schwarzer sem lék eitt sinn með liðinu sem markvörður.

Rudiger var mættur aftur í hjarta varnarinnar í vikunni þegar Chelsea tapaði 2-0 gegn Leicester á útivelli.

Kurt Zouma þurfti að fá sér sæti á varamannabekknum í þeirri viðureign og var sá þýski ekki sannfærandi við hlið Thiago Silva í tapinu.

„Ég er steinhissa á að Rudiger sé kominn aftur í liðið því hann er ekki frábær varnarmaður að mínu mati," sagði Schwarzer.

„Ég tel hann ekki vera nógu góðan fyrir Chelsea. Hann hefur fengið meira en nóg af tækifærum."

„Já hann var mikið meiddur síðustu tvö tímabil en Kurt Zouma ásamt Thiago Silva er besta varnarparið. Þeir sýndu það fyrir nokkrum vikum hversu góðir þeir eru saman."

Chelsea er með aðra hafsenta í Andreas Christensen og Fikayo Tomori en sá síðarnefndi er á förum til AC Milan.

Athugasemdir
banner
banner
banner