Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 23. janúar 2022 13:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fögnuðu með andstæðingi sem sigraðist á krabbameini
Virginia Torrecilla í búningi Barcelona
Virginia Torrecilla í búningi Barcelona
Mynd: EPA
Kvennalið Barcelona vann Ofurbikarinn á Spáni í dag með sigri á Atletico Madrid.

Barcelona gersamlega valtaði yfir Atletico í leiknum en leiknum lauk með 7-0 sigri Barcelona.

Alexia Putellas sem var valin besti leikmaðurinn á FIFA verðlaunahátíð á dögunum lék 66 mínútur og kom ekki að neinu marki.

Á 85. mínútu kom Virginia Torrecilla inná sem varamaður í liði Atletico en hún spilaði sinn fyrsta leik í tæp tvö ár eftir að hafa sigrast á krabbameini.

Hún lék með Barcelona frá 2012-15 en leikmenn Barcelona fögnuðu ekki sigrinum í leiknum heldur tolleruðu þær Torrecilla í leikslok. Myndband af því má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner