23.02.06 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Sander Westerveld til Everton (Staðfest)

Sander Westerveld.

Mynd: Getty Images

Sander Westerveld.

Mynd: Getty Images
Everton hafa komist að samkomulagi um að fá Sander Westerveld fyrrum markvörð Liverpool á láni frá Portsmouth til að létta á markvarðavandræðum þeirra. Enska úrvalsdeildin gaf félaginu leyfi til að fá nýjan markvörð vegna meiðsla og leikbanna annarra markvarða
Westerveld hafði aðeins spilað sjö leiki fyrir Portsmouth á leiktíðinni. Hann er 31 árs gamall og fer beint í byrjunarliðið sem mætir Newcastle á sunnudag.
Nigel Martyn og Richard Wright markverðir númer eitt og tvö eru meiddir og frá næstu vikurnar.
Þriðji markvörðurinn Ian Turner verður í leikbanni um helgina eftir að hafa fengið rautt í síðasta leik og næsti markvörður er John Ruddy sem er á táningsaldri.
Þá er Þórður Ingason næsti kostur og hann hefði verið á bekknum um helgina ef Westerveld hefði ekki komið til. Þórður kom til Everton á láni frá Fjölni í janúar.
Westerveld lék á sínum tíma 75 leiki fyrir hönd erkifénda Everton, Liverpool áður en hann hætti hjá félaginu í desember árið 2001.
Áður en nafn Westerveld kom upp í gærkvöld hafði verið talið langlíklegast að Mart Poom færi til Everton á láni frá Arsenal og átti það aðeins að vera formsatriði ef markverðir Arsenal hefðu haldið sér frá meiðslum í leiknum gegn Real Madrid í fyrrakvöld. Einhverra hluta vegna gekk það hinsvegar ekki eftir.