23.02.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Van Basten tekur við Ajax í sumar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marco van Basten mun taka við þjálfun hollenska liðsins Ajax í sumar eftir Evrópumót landsliða.
Van Basten, sem var á sínum tíma þrívegis leikmaður ársins í Evrópu, þjálfar núna hollenska landsliðið en hann mun hætta með það eftir EM í sumar.
Hann hefur verið orðaður við Chelesa og Barcelona en núna hefur hann hins vegar gert fjögurra ára samning við Ajax eftir að Johan Cruyff góðvinur hans var fenginn í stjórnunarstöðu hjá félaginu
Van Basten sem er fyrrum leikmaður og unglingaþjálfari hjá Ajax mun fá aðstoðarmenn sína úr landsliðinu með sér til Ajax, þá John van't Schip og Rob Witschge.
Ajax hefur gengið illa undanfarin ár en þetta fornfræga félag hefur ekki unnið titil í Hollandi síðan árið 2004 og sem stendur er liðið níu stigum á eftir toppliði PSV í hollensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC