23.02.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Elvar Freyr Arnþórsson í HK (Staðfest)

Elvar (til hægri) í leik með Víkingi fyrir nokkrum árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar (til hægri) í leik með Víkingi fyrir nokkrum árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Freyr Arnþórsson er genginn til liðs við HK á nýjan leik eftir níu ára fjarveru og hefur skrifað undir samning við Kópavogsfélagið til tveggja ára, eða til loka keppnistímabilsins 2013.
Elvar Freyr er 23 ára gamall og lék með HK upp yngri flokkana en hann var í Íslandsmeistaraliðum félagsins í 4. flokki 2001 og 2002.
Elvar fór síðan í Val, lék með U17 og U19 ára landsliðum Íslands, og í meistaraflokki með Stjörnunni, Víkingi R. og Gróttu í 1. deildinni.
Síðasta sumar spilaði Elvar með Augnabliki í 3. deild og varð annar markahæsti maður deildarinnar með 21 mark í 16 leikjum.
HK féll úr 1. deildinni í fyrra.