23.02.12 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Marta til Tyresö FF (Staðfest) - Fær ofurlaun

Marta

Mynd: Getty Images

Marta

Mynd: Getty Images
Brasilíska knattspyrnukonan Marta hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið Tyresö FF, en hún gerði tveggja ára samning í gær.
Marta, sem er 26 ára gömul hefur fimm sinnum verið kjörin besta knattspyrnukona heims af FIFA frá árunum 2006 til 2010, en hún hefur þá tvisvar verið í öðru sæti í kjörinu, 2005 og núna í janúar er hin japanska, Homare Sawo fékk nafnbótina fyrir frábæran árangur á HM í fyrra.
Hún var síðast á mála hjá Western New York Flash í bandarísku atvinnumannadeildinni, en hún var lögð niður fyrir þetta tímabil vegna fjárskorts. Hún lék þá áður með Gold Pride í sömu deild og vann bandaríska titilinn með báðum liðum.
Það var svo tilkynnt í gær endurkomu hennar í sænsku úrvalsdeildina, þar sem hún mun leika með liði Tyresö FF, en laun hennar verða ekkert slor. Hún fær 400 þúsund dollara fyrir tímabilið eða 50 milljónir íslenskra króna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún leikur í Svíþjóð, en hún lék með Umeå IK við góðan orðstír frá árunum 2004 til 2008. Þar var hún fjórum sinnum í röð markahæst í deildinni og skoraði 111 mörk í 103 leikjum með liðinu.
Hún hefur unnið næstum því alla titli á ferlinum sínum, en þó vantar einn titil í safnið og er það heimsmeistaratitillinn. Hún hefur samt sem áður skorað 80 mörk fyrir brasilíska landsliðið í 72 leikjum.