23.02.12 - 18:30
Hafliði Breiðfjörð
Craig Beattie til Hearts (Staðfest)

Craig Beattie í leik með Celtic.

Mynd: Getty Images

Craig Beattie í leik með Celtic.

Mynd: Getty Images
Skoska félagið Hearts hefur fengið til liðs við sig framherjann Craig Beattie og samið við hann til loka tímabilsins.
Beattie var leystur undan samningi hjá Swansea City í síðasta mánuði og hafði einnig rætt við Kilmarnock sem hann hafnaði til að fara til Hearts.
Hann er 28 ára gamall framherji sem á sjö landsleiki að baki. Hann kom til Swansea á 800 þúsund pund frá WBA árið 2009 en það var þá metupphæð hjá Swansea.
Hann hafði ekki leikið einasta leik á tímabilinu með Swansea þegar hann var leystur undan samningi í janúar.
Hann gæti leikið sinn fyrsta leik í skosku deildinni gegn Dundee United um helgina en hann þekkir vel til í Skotlandi þar sem hann lék áður með Celtic.

Heimild: BBC