23.02.12 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Portsmouth á varla pening til að klára tímabilið

Erik Huseklepp í landsleik gegn Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Útlitið hjá Portsmouth í ensku Championship-deildinni er vægast sagt slæmt. Félagið hefur beðið leikmenn um að fá að fresta útborgun og 30 starfsmenn voru gerðir óvirkir í gær.
Trevor Birch, stjórnandi félagsins, segir að illa gangi að láta enda ná saman fyrir lokasprett tímabilsins. Hann mun hverjum félagið verður selt.
Portsmouth er í fallsæti á markatölu eftir að hafa misst tíu stig eftir að hafa farið í greiðslustöðvun. Leikmenn og starfsfólk hefur ekki fengið borgað síðan í desember
Meðan félagið er í greiðslustöðvun fær það ekki að bæta við mönnum í leikmannahóp sinn en Birch segir að fjárhagsstaðan sé enn verri en talið hafi verið í upphafi.
Erik Huseklepp til Birmingham (Staðfest)
Norski landsliðsmaðurinn Erik Huseklepp hefur verið lánaður frá Portsmouth til Birmingham sem er í sömu deild. Birmingham er á góðri siglingu og er sem stendur í þriðja sæti.
Portsmouth fékk Huseklepp frá Bari á Ítalíu síðasta sumar og hann hefur skorað sex mörk í 27 deildarleikjum í vetur. Hann er 27 ára og getur bæði spilað sem kantmaður og framherji.