Jóhannes Kristinn Bjarnason, sonur Bjarna Guðjónsonar, hefur verið að gera góða hluti með U17 ára liði Rangers að undanförnu.
Rangers er að keppa í stóru unglingamóti í Katar og mætti Aspire Academy í dag. Staðan var 2-2 þegar Jóhannes gerði þriðja mark Rangers með því að lyfta boltanum skemmtilega yfir markvörð Aspire sem var kominn langt út úr markinu.
Þetta er annað markið sem Jóhannes skorar á mótinu því hann gerði jöfnunarmarkið í 3-2 sigri gegn Suwon Samsung í fyrstu umferð. Síðan þá hefur Rangers gert tvö jafntefli og tapað einum.
Jóhannes er fæddur 2005 og hefur æft með FC Kaupmannahöfn og Genk á tímabilinu. Hann er leikmaður KR og verður áhugavert að fylgjast með næsta skrefi hans.
Athugasemdir