23.03.10 - 15:04
Magnús Már Einarsson
Jay Spearing til Leicester á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leicester hefur fengið miðjumanninn Jay Spearing á láni frá Liverpool út þetta tímabil.
Spearing, sem er 21 árs gamall, hefur leikið fimm leiki með aðalliði Liverpool.
Fyrsti leikurinn var gegn PSV Eindhoven í desember árið 2008 og í október síðastliðnum var Spearing í fyrsta sinn í byrjunarliði í ensku úrvalsdeildinni í leik gegn Sunderland.
Spearing gæti leikið sinn fyrsta leik með Leicester þegar að liðið mætir Íslendingaliði Reading annað kvöld.
Leicester er sem stendur í fjórða sæti í Championship deildinni og líklegt er að liðið fari í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC