Fotbolti.net
23.03.10 - 19:36
Hafliði Breiðfjörð

Andrés Ellert ráðinn þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar (Staðfest)

Andrés Ellert er nýr þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar. Myndin er tekin er hann var þjálfari Fjölnis fyrir  nokkrum árum og stýrði liðinu á Keflavíkurvelli.

Andrés Ellert er nýr þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar. Myndin er tekin er hann var þjálfari Fjölnis fyrir nokkrum árum og stýrði liðinu á Keflavíkurvelli.

Canon

Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn

Kvennaboltinn
Andrés Ellert Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar út þetta tímabil og hefur störf strax í þessari viku. Þetta staðfesti Einar Páll Tamini formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá félaginu við Fótbolta.net í kvöld en Þorkell Máni Pétursson hafði hætt með liðið í síðustu viku vegna anna á öðrum vettvangi.
Andrés Ellert hefur strax störf með liðið og heldur með þeim í æfingaferð til Portúgals í næstu viku.

Hann hefur mikla reynslu af þjálfun og þjálfaði kvennalið Fjölnis tímabilið 2007 þegar liðið endaði í sjöunda sæti efstu deildar kvenna sem var besti árangur þess liðs frá upphafi. Hann hafði áður þjálfað Fjölni árið 2003 í 1. deild og 2004 í úrvalsdeild.

Þar áður hefur hann þjálfað yngri flokka karla og kvenna hjá félaginu ásamt því að koma að þjálfun meistaraflokkanna milli 1992 og 1999.

Hann er öllum húsum kunnugur í kvennaboltanum hjá Stjörnunni þar sem hann hefur komið að þjálfun meistaraflokks undanfarin ár og meðal annars verið markmannsþjálfari Söndru Sigurðardóttur í fyrra og í ár.

Að öðru leiti verður þjálfarateymi Stjörnunnar óbreytt þar sem Þorlákur Árnason sér um einstaklingsþjálfun og séræfingar og Fannar Karvel Steindórsson er þrek og styrktarþjálfari.

,,Við höfum ekki þurft að leita langt yfir skammt því Elli eins og hann er kallaður er okkur vel kunnugur eftir langt samstarf,\" sagði Einar Páll við Fótbolta.net í kvöld.

,,Fljótlega bárust böndin að honum sem okkar fyrsta kosti í stöðunni og eftir að það var ámálgað við hann tók ekki langan tíma fyrir aðila málsins að ná saman. Það hefur verið markmið okkar að fá inn kröftugan og reyndean þjálfara án þess að valda meiri röskun fyrir hópinn en orðið er.\"

,,Því hefur það að sjálfsögðu verið mikill kostur að geta fengið þjálfara sem bæði þekkti leikmannahópinn og hópurinn þekkti vel til og hefði jafnframt reynslu og hæfni sem þyrfti fyrir toppþjálfara til að styra lðii í efstu deild.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.