Fotbolti.net
23.03.23 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aouar varð fyrir netníð fyrir að velja Alsír

Aouar í búningi franska landsliðsins

Aouar í búningi franska landsliðsins

Canon

Mynd: Getty Images

Houssem Aouar leikmaður Lyon í Frakklandi ákvað á dögunum að skipta um landslið og mun nú spila fyrir Alsír í framtíðinni.

Þessi 24 ára gamli miðjumaður er alinn upp hjá Lyon, hefur spilað fyrir unglingalandslið Frakklands og einn æfingaleik fyrir A landsliðið.

Hann á ættir sínar að rekja til Alsír svo hann hefur þann möguleika að spila fyrir Alsír sem hann ákvað að gera.

Það hafa ekki allir verið parsáttir við þá ákvörðun og deildi hann skjáskotum af allskonar skilaboðum sem hann hefur fengið sem voru miður skemmtileg. Lyon hefur fordæmt þessi skilaboð.

„Lyon styður Houssem Aouar ásamt alla aðra sem eru fórnarlöm rassisma og mismununar vegna uppruna þeirra og ákvarðana," segir í yfirlýsingu frá Lyon.

Sjá einnig:
Aouar staðfestir að hann sé búinn að skipta um landslið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.