Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   mán 23. mars 2026 11:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sveinn Margeir á leið í KA
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sveinn Margeir Hauksson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í KA á láni frá Víkingi. Sveinn gæti svo snúið aftur í Víking í glugganum.

Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem spilaði síðast fyrri hluta tímabilsins 2024, var þá leikmaður KA. Í kjölfarið hélt hann út í háskólanám og samdi við Víking um veturinn.

Þegar hann samdi við Víking varð ljóst að hann næði einungis nokkrum vikum á Íslandi síðasta sumar en meiðsli héldu honum frá vellinum og spilaði hann því ekkert. Hann sneri ekki aftur á völlinn fyrr en fyrir stuttu síðan.

Víkingur er með mikla breidd í sínu liði og líkur á stærra hlutverki hjá KA á meðan Sveinn er að vinna sig til baka í sitt besta leikform.

Dalvíkingurinn (2001) þekkir vel til hjá KA, samdi við félagið um mitt sumar 2019 og lék með liðinu 2020-2024. Hann spilaði mjög vel með KA síðustu vikurnar áður en hann hélt til Bandaríkjanna í skóla.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner