Fotbolti.net
23.03.26 - 10:07
Kári Snorrason

Uppfærð Lengjuspá - Nýtt lið á toppnum

Njarðvík er spáð toppsætinu.

Njarðvík er spáð toppsætinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardaginn setti Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur Fótbolta.net um Lengjudeildina, fram uppfærða spá fyrir Lengjudeildina sem hefst 24. apríl.

Rúmur mánuður er liðinn frá síðustu spá og eru talsverðar breytingar, aðeins þrjú lið halda sama sæti. Njarðvík er nú spáð efsta sætinu á meðan Þróttur færist niður um eitt sæti.

Þróttur tryggir sér því sæti í umspilinu ásamt Fylki, HK og Aftureldingu ef spáin gengur eftir.

Völsungi er áfram spáð neðsta sætinu og Ægir fylgir þar á eftir í 11. sæti. Mesta færslan er á Vestra sem fellur úr sjötta sæti niður í það níunda.
Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast
TENGT EFNI

Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast

Ótímabæra Lengjudeildarspáin
1. Njarðvík +1
2. Þróttur R. -1
3. Fylkir +2
4. HK
5. Afturelding -2
6. ÍR +1
7. Leiknir R. +2
8. Grindavík
9. Vestri -3
10. Grótta +1
11. Ægir -1
12. Völsungur
Baldvin Már Borgarsson sá um ótímabæru spánna.

Baldvin Már Borgarsson sá um ótímabæru spánna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.