23.04.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Kári Einarsson í Leikni R. (Staðfest)

Kári í búningi Leiknis.

Mynd: Leiknir.com

Kári í búningi Leiknis.

Mynd: Leiknir.com
Leiknir Reykjavík, sem leikur fyrstu deild karla, hefur fengið Kára Einarsson til liðs við sig frá Víkingi Reykjavík.
Kári, sem getur leikið hægra megin á vellinum og í fremstu víglínu, hefur æft með Víkingi í vetur og í febrúar gerði hann þriggja ára samning við félagið.
Hann hefur hins vegar núna komist að samkomulagi um að fá að ganga til liðs Leikni en hann lék með liðinu í æfingaleik gegn Fylki um síðustu helgi.
Kári lék með Víkingi 2004 og 2005 en þessi 21 árs gamli leikmaður lék með Berserkjum í þriðju deildinni í fyrra eftir að hafa átt við þrálát meiðsli að stríða.
Kári er annar leikmaðurinn sem Leiknir fær til liðs við sig á innan við vikutíma en fyrir helgi var greint frá því að danski varnarmaðurinn Rune Koertz hefði gert samning við félagið.

Heimild: Heimasíða Leiknis