Fotbolti.net
23.05.05 - 15:33
Magnús Már Einarsson

Seitaridis til Dynamo Moskvu (Staðfest)

Giourkas Seitaridis.

Giourkas Seitaridis.

Canon
Dynamo Moskva hefur keypt varnarmanninn Giourkas Seitaridis frá Porto á 10 milljónir evra. Seitaridis sem er grískur hefur gert 5 ára samning við Dynamo
Seitaridis mun hitta fyrir miðjumennina Costinha og Maniche hjá Dynamo Moskvu en liðið keypti þá frá Porto fyrr í mánuðinum og hefur nú keypt alls 7 leikmenn frá ýmsum liðum í Portúgal.

Alexei Fedorychev eigandi Dynamo ætlar sér stóra hluti með liðið og hefur þegar eitt um 32 milljónum punda í nýja leikmenn og hann segjast ætla að eyða um 54 milljónum punda í viðbót í liðið á næstu 2 árum.

Dynamo hefur hinsvegar ekki byrjað vel á leiktíðinni og tapað 4 leikjum og hefur þjálfarinn Oleg Romantsev fengið að taka pokann sinn vegna þessa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.