Fotbolti.net
23.05.07 - 15:50
Margrét Lára Viðarsdóttir

Þóra Björg Helgadóttir í Anderlecht (Staðfest)

Þóra Björg Helgadóttir í Anderlecht (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Kvennaboltinn
Landsliðskonan Þóra Björg Helgadóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við belgíska liðsins Anderlecht frá OHL. Anderlecht sem staðsett er í Brussel endaði í 2 sæti deildarinnar á síðustu leiktíð sem endaði nú fyrir skömmu. OHL endaði hins vegar í því 8.
Þóra Helgadóttir hefur verið ein besta knattspyrnukona Íslands undanfarin ár og hefur verið einn af máttarstólpum íslenska landsliðsins. Hún flutti til Brussel í febrúarmánuði vegna vinnu sinnar og hóf að leika með liði OHL í belgísku úrvalsdeildinni.

Þóra segist vera mjög ánægð með dvölina í Belgíu og gæti vel hugsað sér að búa þar í einhvern tíma ,,Ég er mjög ánægð hér í Brussel. Ég hef komið mér vel fyrir og allt gengur mjög vel. Það er gaman að búa svona í miðri Evrópu og þó ég hafi áður búið úti þá er þetta allt önnur reynsla en að búa í Bandaríkjunum. Ég gæti alveg séð mig endast eitthvað hér úti."

Þóra sem hefur spilað bæði fyrir meistaraflokka KR og Breiðabliks og unnið ófáa bikarana með liðum sínum á íslenskri grundu segir að dvöl hennar hjá OHL hafi gefið henni mikið og við báðum hana að bera liðið saman við þau íslensku ,,Það er erfitt að bera liðið saman við þau íslensku en ætli það sé ekki í slakari kantinum."

Þóra hélt áfram ,,Það sem ég hef kannski grætt mest á er að það er nóg að gera í öllum leikjum sem er mjög góð tilbreyting fyrir mig. Íslenski boltinn býður einfaldlega ekki upp á það fyrir markmann í einu toppliðanna."

Engin íslenskur kvennmaður hefur spilað í belgísku deildinni áður en Þóra hélt út og því var forvitnilegt að spyrja Þóru hver væri helsti munurinn á deildunum ,,Ég myndi segja að deildin hér væri ekki jafnsterk og heima en hins vegar er hún jafnari og stærri. T.d. þá lendum við í 8. sæti í deildinni en erum samt mjög nálægt því að taka stig af efstu tveimur liðunum, Wezemaal og Anderlecht."

,,Í bikarnum, sláum við út liðin í 4. og 6. sæti á leið í undanúrslit í bikar þar sem við vinnum annan leikinn gegn Wezemaal en töpum samanlagt. Því miður er þetta ekki raunin heima eins og tölurnar úr fyrstu umferðinni gefa klárlega til kynna."

Andrelecht endaði í 2. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og hafa til að mynda belgíska landsliðsmarkvörðinn innanborðs en Þóra telur að það séu spennandi tímar framundan og ætlar sér stóra hluti fyrir félagið ,,Anderlecht liðið er nokkru sterkara en OHL enda er þetta stór og flottur klúbbur. Öll aðstaða er til fyrirmyndar og það er líka mikill bónus að það er inni í Brussel þar sem ég bý og starfa. Svo stefni ég bara á að verða hinn nýi Arnór Guðjónsen klúbbsins" sagði Þóra í léttum tón

Íslenska kvennalandsliðið hefur keppni í undankeppni EM í næstu viku og var það ekki úr vegi að spyrja Þóru hvernig henni litist á leikinn og möguleika íslenska liðsins yfir höfuð ,,Ég tel möguleika liðsins aldrei hafa verið betri. En þrátt fyrir að möguleikarnir séu góðir þá þurfa leikmenn og þjálfarar að halda rétt á spilunum".

,,Að mínu mati, hefur spennustig verið eitt helsta vandamál liðsins þar sem það er alltaf annaðhvort oflágt eða ofhátt. Íslenska liðið þarf að sýna jafnari spilamennsku, það er t.d. ekki nógu gott að tapa 4-0 fyrir Englandi. Ef að liðið ræður fram úr þessu þá eru því allir vegir færir og leiðin greið á næsta stórmót því hæfileikarnir eru til staðar". sagði þessi hæfileikaríki markvörður að lokum.
Þóra Björg Helgadóttir í Anderlecht (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Þóra Björg Helgadóttir í Anderlecht (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.