Fotbolti.net
23.06.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Orlando Engelaar til PSV Eindhoven (Staðfest)

Orlando Engelaar í leik með hollenska landsliðinu.

Orlando Engelaar í leik með hollenska landsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

PSV Eindhoven fékk í gær til liðs við sig hollenska landsliðsmanninn Orlando Engelaar frá þýska félaginu Schalke.
Engelaar gerði fjögurra ára samning við PSV Eindhoven en hjá félaginu hittir hann fyrir Fred Rutten þjálfara liðsins sem þjálfaði hann áður hjá FC Twente og Schalke.

PSV gaf ekki upp kaupverð á leikmanninum í gær.

Engelaar hefur leikið 11 landsleiki fyrir Holland.

Josef Schnusenberg forseti Schalke sagði í síðustu viku að hann vildi að liðið treysti meira á yngri leikmenn.

Engelaar er önnur kaup PSV í sumar því áður höfðu þeir fengið varnarmanninn Andre Ooijer.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.