Fotbolti.net
23.06.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Danijel Pranjic til Bayern Munchen (Staðfest)

Danijel Pranjic til Bayern Munchen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Danijel Pranjic miðjumaður króatíska landsliðsins er genginn til liðs við Bayern Munchen í Þýskalandi og gerir þriggja ára samning við félagið.

Hann kemur til þeirra frá Heerenveen í Hollandi.
Bayern og Heerenveen gengu frá samningnum í gær og komust að samkomulagi um að gefa kaupverðið ekki upp opinberlega.

Pranjic sem er 27 ára gamall gekk til liðs við Heerenveen frá Dinamo Zagreb árið 2005.

Hann skoraði 16 mörk á síðustu leiktíð.

Karl-Heinz Rumenigge sagði; ,,Pranjic er fjölhæfur leikmaður sem var mjög ofarlega á óskalista okkar nýja þjálfara Louis Van Gaal.\"

Pranjic er kominn í hóp með nokkrum kaupum félagsins í sumar en meðal annarra er Króatinn Ivica Olic og þýski framherjinn Mario Gomez.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.