Fotbolti.net
23.06.09 - 15:41
Magnús Már Einarsson

Stuart Taylor til Man City (Staðfest)

Stuart Taylor til Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur keypt markvörðinn Stuart Taylor frá Aston Villa fyrir óuppgefna upphæð.
Taylor, sem er 28 ára, hefur lítið fengið að spila með Aston Villa en hann var í láni hjá Cardiff í nokkrar vikur á síðasta tímabili.

Taylor verður væntanlega varamarkvörður fyrir Shay Given hjá City en það þýðir að hinn ungi Joe Hart getur fengið að fara til Birmingham á láni.

,,Ég get ekki beðið eftir því að byrja. Þetta er frábært félag,\" sagði Taylor eftir að gengið var frá samningum í dag.

Taylor kom til Aston Villa árið 2005 en áður var hann í átta ár í herbúðum Arsenal.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.