23.06.09 - 17:03
Gunnar Gunnarsson
Olof Mellberg til Olympiakos (Staðfest)
spilar með grísku meisturunum á næstu leiktíð

Sænski varnarmaðurinn hefur skrifað undir samning við Olympiakos í Grikklandi.

Mynd: Getty Images

Hinn sænski Olof Mellberg hefur yfirgefið herbúðir ítalska liðsins Juventus og skrifað undir samning við grísku meistaranna í Olympiakos en þetta var staðfest nú síðdegis á heimasíðu Juventus.
Þessi vistaskipti hafa verið í burðarliðnum undanfarna daga og hafa félögin komist að samkomulagi um kaupverðið sem ku vera um 2.5 milljónir evra auk þess sem hálf milljón evra mun bætast við aukalega takist Olympiakos að vinna grísku deildina á næsta tímabili.
Mellberg sem lék áður með Aston Villa átti frekar óstöðuga leiktíð á Ítalíu í vetur og spilaði 27 leiki, en sá sænski var aðallega í því að leysa af liðsfélaga sína Giorgio Chiellini, Nicola Legrottaglie og Jonathan Zebina þegar þeir áttu við meiðsli að stríða.
Olympiakos vann grísku deildina með 8 stiga mun á síðasta keppnistímabili og vonast forráðamenn félagsins að reynsla Mellberg komi þeim að góðum notum til þess að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í haust. Liðinu mistókst að vinna sér sæti í deild þeirra bestu á síðustu leiktíð þegar þeir biðu lægri hlut fyrir kýpverska liðinu Anorthosis Famagusta.

Heimild: Goal.com