Fotbolti.net
23.06.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Manuel da Costa til Lokomotiv Moskvu (Staðfest)

Manuel da Costa til Lokomotiv Moskvu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lokomotiv Moskva hefur keypt varnarmanninn Manu da Costa frá West Ham en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Þessi 25 ára gamli leikmaður átti eitt ár eftir af samningi sínum við West Ham.
Da Costa kom til West Ham frá Fiorentina sumarið 2009 en hann skoraði fjögur mörk í 35 leikjum með West Ham.

Hjá Lokomotiv hittir hann fyrir Victor Obinna sem var einnig á mála hjá West Ham á síðasta tímabili áður en hann fór til rússneska félagsins í síðustu viku.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.