Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 23. júní 2021 13:30
Elvar Geir Magnússon
Grealish mættur til að njóta: Vitið öll hvaða trú ég hef á sjálfum mér
Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa.
Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa.
Mynd: EPA
Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, segist ekki vera í neinum vafa um að stjarna sín geti skinið skært með enska landsliðinu í framtíðinni. Grealish lagði upp sigurmark Englands gegn Tékklandi á EM í gær.

Þessi hæfileikaríki leikmaður ætlar sér stóra hluti í landsliðstreyjunni og fann ekki fyrir neinu stressi í gær.

„Það er ekkert sem hefur sagt að ég geti ekki staðið mig á þessu sviði. Þið vitið öll hvaða trú ég hef á sjálfum mér. Ég tel að ég hefði getað skapað enn meiri hættu í gær en við unnum og það er aðalatriðið," segir Grealish.

„Mér leið vel á vellinum og liðsframmistaðan var góð. Ég fann ekki neina pressu, ég elska að spila fótbolta. Ég fæddist til að gera það og fæ borgað fyrir það."

England tryggði sér sigur í sínum riðli og mun mæta erfiðum mótherja úr F-riðli í 16-liða úrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner