Christopher Nkunku hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við þýska félagið RB Leipzig og er nú bundinn félaginu til 2026.
Þessi fjölhæfi franski sóknarmiðjumaður er 24 ára og hefur verið orðaður við Manchester United og Chelsea.
Hann átti stórgott tímabil í Þýskalandi þar sem hann skoraði 20 deildarmörk og lagði upp 13 í 34 leikjum.
Þá varð hann þýskur bikarmeistari með Leipzig í maí.

Nkunku segir að Leipzig hafi sannað sig á stóra sviðinu á undanförnum árum og sýnt að það getur barist um titla.
Athugasemdir