Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 19:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Launakröfur Chiesa of háar
Mynd: EPA
Federico Chiesa, leikmaður Liverpool, hefur verið orðaður við Milan en ítalskir fjölmiðlar greina frá því að launakröfur leikmannsins geri þetta erfitt fyrir Milan.

Hann hefur einnig verið orðaður við Napoli en Milan er líklegri áfangastaður. Talið er að Chiesa vilji fá 7.5 milljónir evra í árslaun.

Milan gæti hins vegar fundið lausn á því með því að bjóða honum lengri samning og borga launin yfir lengri tíma eða selja leikmenn.

Chiesa gekk til liðs við Liverpool frá Juventus síðasta sumar en hann kom aðeins við sögu í 14 leikjum í öllum keppnum. Meiðsli settu strik í reikninginn.
Athugasemdir
banner
banner