Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Salah grínast með númerið hjá Wirtz
Mohamed Salah.
Mohamed Salah.
Mynd: EPA
Florian Wirtz varð í síðustu viku dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar er hann var keyptur til Liverpool fyrir 116,5 milljónir punda.

Það er spurning hvaða númer Wirtz fær hjá Liverpool en það hefur ekki enn verið opinberað.

Wirtz hefur verið númer 10 hjá Bayer Leverkusen upp á síðkastið en Alexis Mac Allister er með það númer hjá Liverpool. Það var talað um það í þýskum fjölmiðlum fyrir stuttu að Wirtz vildi fá tíuna en hann sagði svo sjálfur ekkert til í því.

Liverpool birti nýverið mynd af Wirtz þar sem hann horfir á Liverpool treyjuna og ákvað Mohamed Salah, stjarna liðsins, að grínast í ummælakerfinu. Hann skrifaði: „Númer 8?" og merkti Dominik Szoboszlai, sem er með það númer hjá Liverpool.

Salah og Szoboszlai eru góðir félagar og þarna er Salah að grínast eitthvað. Ólíklegt er að Wirtz fái áttuna.


Athugasemdir