Fotbolti.net
23.07.06 - 16:01
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Soldado á láni til Osasuna (Staðfest)

Roberto Soldado fagnar marki sínu gegn Olympiakos á síðasta tímabili

Roberto Soldado fagnar marki sínu gegn Olympiakos á síðasta tímabili

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn efnilegi hjá Real Madrid, Roberto Soldado, mun eyða næsta tímabili hjá Osasuna á eins árs lánssamningi.
Soldado, sem er 21 árs gamall, fór af æfingasvæði Real í Austurríki í morgun til að skrifa undir lánssamninginn. Hann spilaði ellefu leiki með Madrídarliðinu á síðasta tímabili og skoraði í þeim tvö mörk, þar á meðal sigurmarkið gegn Olympiakos í Meistaradeildinni.

,,Real Madrid metur þá reynslu mikið sem leikmaðurinn, sem hefur bjarta framtíð fyrir sér, mun öðlast á næsta árinu með öðru úrvalsdeildarfélagi sem mun einnig taka þátt í Meistaradeildinni,” sagði í yfirlýsingu Real Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.