Fotbolti.net
23.07.09 - 07:02
Magnús Már Einarsson

Helgi Bogason tekur við Njarðvík (Staðfest)

Helgi Bogason (til vinstri).

Helgi Bogason (til vinstri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Helgi Bogason hefur verið ráðinn þjálfari Njarðvíkur í 2.deild karla en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í gærkvöldi.
Helgi tekur við starfinu af Marko Tanasic sem að hætti síðastliðinn mánudag.

Í gær var greint frá því að Snorri Már Jónsson og Guðni Erlendsson myndu stýra Njarðvík tímabundið en Helgi hefur núna verið ráðinn þjálfari.

Helgi þekkir hvern krók og kima hjá Njarðvík eftir að hafa þjálfað liðið frá 2002 og 2007 en hann náði fínum árangri á þeim tíma.

Njarðvíkingar mæta Hvöt í 2.deildinni á laugardag en liðið er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig líkt og Grótta í öðru sætinu.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.