Fotbolti.net
23.07.09 - 08:51
Hafliði Breiðfjörð

Theodór Elmar til Gautaborgar (Staðfest)

Theodór Elmar er farinn til Gautaborgar.

Theodór Elmar er farinn til Gautaborgar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Theodór Elmar Bjarnason er genginn í raðir IFK Gautaborgar í Svíþjóð en þangað kemur hann frá Lyn í Noregi sem hefur átt í fjárhagsvandræðum.
Þetta staðfesti Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður leikmannsins við Fótbolta.net í gærkvöld en Theodór Elmar sem samdi við sænska félagið til ársins 2012 mun mæta á sína fyrstu æfingu þar í dag.

Theodór Elmar er 22 ára gamall landsliðsmaður Íslands. Hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá KR árið 2004 er hann lék 10 leiki með liðinu í Landsbankadeild karla og einn í bikarnum. 20. desember það ár gekk hann svo í raðir Glasgow Celtic í Skotlandi þar sem hann var fram í janúar á síðasta ári er hann gekk í raðir Lyn.

Hann á að baki 9 landsleiki fyrir Íslands hönd en dróg sig út úr landsliðshópnum fyrr í sumar og ákvað að einbeita sér að félagsliði sínu í bili.

Hjá Gautaborg hittir hann fyrir tvo aðra Íslendinga, þá Hjálmar Jónsson og Ragnar Sigurðsson landsliðsmenn Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.