23.07.09 - 16:51
Hafliði Breiðfjörð
Marinko Skaricic til Fjölnis (Staðfest)
Byrjar gegn sínum gömlu félögum í Grindavík á mánudag

Skaricic í leik með Grindavík gegn HK í fyrrasumar.

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Skaricic í leik með Grindavík gegn HK í fyrrasumar.

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson
Króatíski varnarmaðurinn Marinko Skaricic skrifaði í dag undir samning við Fjölni sem gildir út þetta tímabil en þetta Einar Hermannsson formaður meistaraflokksráðs Fjölnis í samtali við Fótbolta.net í dag.
Við greindum frá því fyrr í morgun að Skaricic væri að koma til æfinga hjá Fjölni en félagið tók svo ákvörðun um að semja við hann strax. Hann nær ekki leikheimild fyrir leikinn gegn Val í kvöld en ef allt fer að óskum ætti það að nást fyrir leikinn gegn hans gömlu félögum í Grindavík á mánudag.
Skaricic sem er 29 ára gamall spilaði oftast sem miðvörður er hann lék með Grindavík. Hann á að baki tvo U-21 árs landsleiki að baki með Króatíu.
Hann lék með Grindavík undanfarin tvö ár, fyrst í 1. deildinni sumarið 2007 og svo aftur síðasta sumar í efstu deild þar sem hann lék 19 leiki og skoraði eitt mark auk þriggja bikarleikja.