Fotbolti.net
23.07.11 - 07:17
Magnús Már Einarsson

Chelsea lánar Courtois til Atletico (Staðfest)

Chelsea lánar Courtois til Atletico (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid hefur fengið markvörðinn Thibaut Courtois á láni frá Chelsea.
Courtois gekk til liðs við Chelsea í síðustu viku en hann kom til féalgsins frá Genk.

Þessi 19 ára gamli leikmaður mun vera á mála hjá Atletico á komandi tímabili til að öðlast meiri reynslu.

Courtois mun mæta á sína fyrstu æfingu hjá Atletico á morgun en hann gæti fyllt skarðið sem David De Gea skyldi eftir sig þegar hann fór til Manchester United fyrr í sumar.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.