Fotbolti.net
23.07.11 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Felipe Melo til Galatasaray (Staðfest)

Felipe Melo til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Galatasaray frá Tyrklandi hefur fengið miðjumanninn Felipe Melo á láni frá Juventus.
Galatasaray borgar 1,5 milljónir evra til að fá Melo á láni en félagið getur síðan keypt hann á 13 milljónir evra.

Juventus krækti fyrr í vikunni í miðjumanninn Arturo Vidal og í kjölfarið var ljóst að Melo yrði ekki inni í myndinni þar.

Þessi 28 ára gamli leikmaður fær oft rauð spjöld en hann var meðal annars sendur í bað þegar Brasilía tapaði gegn Hollendingum í 8-liða úrslitunum á HM í fyrra.

Melo missti í kjölfarið sæti sitt í landsliðinu en hann hefur ekki spilað landsleik síðan Mano Menezes tekur við liðinu.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.