23.07.11 - 08:29
Magnús Már Einarsson
Gabriel Heinze til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Argentínski varnarjaxlinn Gabriel Heinze hefur gengið til liðs við Roma á Ítalíu.
Heinze, sem lék áður með Real Madrid og Manchester United, kemur til Roma frá Marseille í Frakklandi.
Heinze var launahæsti leikmaður Marseille en hann greindi frá því í maí að hann væri á förum frá félaginu.
Þessi 33 ára gamli leikmaður skrifaði á endanum undir eins árs samning við Roma með möguleika á árs framlengingu.
Roma krækti einnig í bakvörðinn Loic Nego frá Nantes í gær og þá er framherjinn Bojan Krkic einnig kominn til félagsins frá Barcelona.

Heimild: Football Italia