23.07.11 - 15:49
Alexander Freyr Tamimi
Þórður Steinar Hreiðarsson í Breiðablik (Staðfest)

Þórður Steinar í leik með Þrótti gegn Breiðablik. Hann mun nú klæðast grænu treyjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Þórður Steinar Hreiðarsson er genginn til liðs við Íslandsmeistara Breiðabliks, en þetta kom fram á vefsíðunni Blikar.is
Þórður Steinar lék með Val til ársins 2006 og átti svo nokkur ár hjá Þrótti þar sem hann var lykilmaður. Hann gekk síðan til liðs við færeysku meistarana í HB þar sem Kristján Guðmundsson var að þjálfa.
Vitað var að uppeldisfélagið Valur vildi fá Þórð Steinar í glugganum en það virðist ekkert hafa orðið af því.
Breiðablik hefur valdið vonbrigðum í sumar og er í 6. sæti deildarinnar með 15 stig. Þórður Steinar ætti að verða orðinn gjaldgengur í leik liðsins gegn KR annað kvöld.

Heimild: www.blikar.is