23.08.06 - 16:00
Magnús Már Einarsson
Diogo lánaður frá Real Madrid til Real Zaragoza (Staðfest)

Diogo hendir sér í eina tæklingu.

Mynd: Getty Images

Diogo hendir sér í eina tæklingu.

Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur lánað úrúgvæska hægri bakvörðinn Carlos Diogo til Real Zaragoza út þessa leiktíð en frá þessu greindu spænsku félögin í dag.
Diogo sem getur einnig spilað á hægri kanti kom til Real frá River Plate í júlí árið 2005 en hann fékk fá tækifæri eftir að Cicinho kom til spænska félagsins í janúar.
Zaragoza endaði í ellefta sæti í spænsku deildinni á síðustu leiktíð en hefur styrkt sig í ár og meðal annars keypt miðjumennina leiknu Pablo Aimar og Andres D'Alessandro.
Zaragoza endaði í ellefta sæti í spænsku deildinni á síðustu leiktíð en hefur styrkt sig í ár og meðal annars keypt miðjumennina leiknu Pablo Aimar og Andres D'Alessandro.
