Fotbolti.net
23.08.07 - 16:26
Sindri Þór Þorgeirsson

Kasey Keller til Fulham (Staðfest)

Kasey Keller til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham gengu í dag frá kaupunum á bandaríska markmanninum Kasey Keller frá þýska liðinu Borussia Monchengladbach.
Keller sem er 37 ára er alls ekki ókunnugur í ensku úrvalsdeildinni en hann spilaði bæði með Tottenham Hotspur og Leicester áður en hann hélt til Monchengladbach í þýsku Bundesligunni fyrir tveimur árum.

Tony Warner hefur staðið í marki Fulham í fyrstu þremur leikjunum á tímabilinu og hefur vakið mikla athygli. Fyrst var hann maður leiksins gegn Arsenal og varði oft á tíðum frábærlega, en í tveimur síðustu leikjum hefur hann gert tvö hræðileg mistök þar sem hann færði Heiðari Helgusyni meðal annars mark á silfurfati.

Lawrie Sanchez var mjög ánægður með að fá Keller.

,,Ég er hæstánægður með að Kasey er genginn til liðs við okkur og ég er viss um að hann verður frábær viðbót við leikmannahóp okkar," sagði Sanchez.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.