23.08.07 - 16:58
Sindri Þór Þorgeirsson
Robben og Heinze til Real Madrid (Staðfest)

Arjen Robben

Mynd: Getty Images

Gabriel Heinze

Mynd: Getty Images

Arjen Robben

Mynd: Getty Images
Spánarmeistarar Real Madrid hafa gengið frá kaupunum á Argentínumanninum Gabriel Heinze frá Manchester United og Hollendingnum Arjen Robben frá Chelsea.
Leikmennirnir skrifuðu undir samninga við félagið í dag eftir að þeir höfðu gengist undir læknisskoðun hjá félaginu í morgun. Þeir verða báðir kynntir fyrir spænskum fjölmiðlum seinna í dag.
Arjen Robben hefur verið orðaður við Real Madrid í allt sumar en Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea hefur sagst vilja halda þessum snögga kantmanni hjá félaginu.
Chelsea hafa þó loksins komist að samkomulagi við Madrid. Kaupverðið er talið vera um 24 milljónir punda og Robben skrifaði undir fimm ára samning við félagið.
Það ætti hinsvegar ekki að hafa farið framhjá neinum að Heinze vildi fara til Liverpool og hann hefur verið í deilum við Manchester United í nánast allt sumar.
Félagaskipti hans til Liverpool gengu hins vegar ekki upp og hann ákvað því að fara til Spánarmeistaranna. Kaupverðið á Heinze er talið vera um 8 milljónir punda og hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.

Heimild: Sky Sports

Gabriel Heinze

Mynd: Getty Images