Fotbolti.net
23.08.07 - 19:32
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Stefano Fiore til Mantova (Staðfest)

Fiore í leik með Lazio á sínum tíma

Fiore í leik með Lazio á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum ítalski landsliðsmaðurinn Stefano Fiore hefur gengið til liðs við ítalska Serie B félagið Mantova.
Þessi 32 ára gamli leikmaður yfirgaf Valencia fyrr í sumar þar sem hann fékk fá tækifæri og hefur hann undanfarin tvö ár verið á láni í heimalandinu.

Tímabilið 2005/06 var hann í láni hjá Fiorentina þar sem hann var fastamaður en þeir gerðu hins vegar aldrei til þess að kaupa kappann. Síðasta sumar fór hann til Torino en þar fékk hann fá tækifæri og fór því til Livorno í janúar.

Fiore, sem mun án nokkurs vafa laða að fólk á völlinn þar sem Mantova ætlar sér að komast upp í Serie A, hefur spilað 38 landsleiki fyrir Ítalíu.

Heimild: Channel 4

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.