Fotbolti.net
23.08.10 - 07:29
Hafliði Breiðfjörð

Lars Óli til TMFK - Magnús framlengir (Staðfest)

Magnús Þór hefur framlengt hjá TMFK.

Magnús Þór hefur framlengt hjá TMFK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenski miðjumaðurinn Lars Óli Jessen er genginn í raðir norska félagsins Tornado Måløy en hann kemur þangað frá Magna á Grenivík.
Lars Óli hafði skorað 5 mörk í 10 leikjum með Magna í 3. deildinni í sumar eftir að hafa komið þangað á láni frá Þór Akureyri í maí.

Hann gengur nú í raðir norska félagsins þar sem hann fær treyjunúmer 17. Hann samdi út tímabilið 2011.

Hann er annar Íslendingurinn hjá norska félaginu því þar er fyrir markvörðurinn Magnús Þór Magnússon.

Magnús var sjálfur að skrifa undir nýjan samning við félagið fyrir helgi eftir að hafa átt frábært tímabil með liðinu.

Heimild: Vefur TMFK (1) | Vefur TMFK (2)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.