Fotbolti.net
23.08.10 - 12:19
Magnús Már Einarsson

Steven Caldwell til Wigan (Staðfest)

Steven Caldwell til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur gert eins árs samning við Steven Caldwell en hann kemur frítt til félagsins eftir að hafa yfirgefið Burnley fyrr í sumar.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur æft með Wigan að undanförnu og nú hefur hann samið við félagið.

Wigan veitir ekki af því að styrkja varnarleik sinn en liðið tapaði 4-0 gegn Blackpool í fyrstu umerð ensku úrvalsdeildarinnar og um helgina steinlá liðið síðan 6-0 gegn Chelsea.

Steven er bróðir Gary Caldwell sem var á dögunum gerður að fyrirliða hjá Wigan.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.