Fotbolti.net
23.08.10 - 14:24
Magnús Már Einarsson

Jason Scotland til Ipswich (Staðfest)

Jason Scotland til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ipswich Town hefur keypt framherjann Jason Scotland frá Wigan Athletic fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 31 árs gamli leikmaður skrifaði undir eins árs samning við Ipswich en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Crewe í enska deildabikarnum annað kvöld.

Scotland raðaði inn mörkum með Swansea frá 2007-2009 áður en Wigan keypti hann í fyrra.

Scotland virtist hafa gleymt markaskónum hjá Swansea því ekkert gekk upp hjá honum fyrir framan markið þegar hann lék með Wigan.

Nú vonast Scotland til að komast aftur á skrið undir stjórn Roy Keane hjá Ipswich.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.