Fotbolti.net
23.08.10 - 16:25
Magnús Már Einarsson

Mido til Ajax (Staðfest)

Mido til Ajax (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ajax hefur samið við framherjann Mido en hann kemur frítt til félagsins frá Middlesbrough.
Þessi 27 ára gamli leikmaður var ekki inn i í myndinni hjá Middlesbrough og því fékk hann að fara.

Mido þekkir til hjá Ajax því hann lék með liðinu frá 2001-2003 og var þónokkuð til vandræða en hann henti meðal annars skærum í þáverandi liðsfélaga sinni Zlatan Ibrahimovic.

Mido er vandræðagemsi og stoppar yfirleitt ekki lengi við hjá félögum en síðan 2003 hefur hann auk Middlesbrough leikið með Celta Vigo, Marseille, Roma, Tottenham, Wigan, Zamalek og West Ham.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.