23.08.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Lucas Neill til Al Jazira (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ástralski varnarmaðurinn Lucas Neill hefur gengið til liðs við Al Jazira í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum.
Þessi 33 ára gamli leikmaður kemur frítt til Al Jazira frá Galatasaray í Tyrklandi.
,,Ég er mjög spenntur fyrir þessari nýju áskorun og hlakka til að fara á nýja heimili mitt í Abu Dhabi,\" sagði Neill hæstánægður á heimasíðu sinni.
Neill lék lengi á Englandi með Blackburn, West Ham og Everton en hann gekk í raðir Galatasaray í fyrra.

Heimild: Sky