23.08.11 - 12:31
Hörður Snævar Jónsson
Arsenal samþykkir tilboð Manchester City í Nasri (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur samþykkt kauptilboð Manchester City í Samir Nasri. Þetta staðfesti félagið á vefsíðu sinni.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur verið í herbúðum Arsenal síðustu þjú ár.
Hann ferðast ekki með liðinu í útileikinn gegn Udinese í Meistaradeildinni en leikurinn verður á dagskrá annað kvöld.
Nasri fer þess í stað í læknisskoðun hjá Manchester City í dag.
Skiptin munu svo ganga í gegn ef hann stenst læknisskoðun og kemst að samkomulagi um kaup og kjör.
City er búið að reyna að fá Nasri í allt sumar en hann var einnig orðaður við Manchester United.

Heimild: Heimasíða Arsenal