23.09.09 - 16:34
Magnús Már Einarsson
Olivier Dacourt til Standard Liege (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Olivier Dacourt hefur gert samning við belgíska félagið Standard Liege.
Dacourt, sem verður 35 ára á föstudag, hefur samið við Standard út þetta tímabil en hann hefur verið án félags síðan að hann yfirgaf Inter í sumar,
Belgíska félagið vonast til að Dacourt geti fyllt skarðið sem Steven Defour skilur eftir sig en hann verður frá keppni í að minnsta kosti þrjá mánuði vegna meiðsla.
Dacourt hefur á ferli sínum meðal annars leikið með Lens, Leeds United, AS Roma og Fulham.

Heimild: Sky