23.09.10 - 13:22
Magnús Már Einarsson
Eysteinn Húni Hauksson tekur við Hetti (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Eysteinn Húni Hauksson hefur komist að munnlegu samkomulagi um að taka við þjálfun Hattar á Egilsstöðum.
Þetta staðfesti Gunnlaugur Guðjónsson formaður meistaraflokksráðs Hattar í samtali við Fótbolta.net í dag.

Eysteinn Húni tekur við liðinu af Jóni Páli Pálmasyni sem stýrði Hetti í sumar þegar liðið endaði í fjórða sæti í annarri deildinni.
Eysteinn Húni lagði skóna á hilluna fyrir rúmu ári síðan eftir að hafa leikið með Grindavík um árabil.
Hann lék alls 201 leik í efstu deild með Grindavík og Keflavík á ferli sínum en undanfarin ár hefur hann komið að þjálfun hjá yngri flokkum Grindavíkur.