Fotbolti.net
23.10.06 - 22:35
Magnús Már Einarsson

Hannes Þór Halldórsson í Fram (Staðfest)

Hannes Þór Halldórsson í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Rögnvaldur Már Helgason

Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson hefur gert tveggja ára samning við Fram en við greindum frá því á dögunum að hann ætti í viðræðum við félagið.
Hannes Þór sem er 22 ára mun taka við markvarðarhlutverkinu hjá Fram af Gunnari Sigurðssyni sem lagði skóna á hilluna á dögunum eftir að hafa varkið mark liðsins undanfarin ár.

Hannes losnaði undan samningi hjá Stjörnunni í síðustu eftir ársdvöl hjá félaginu en hann lék vel í fyrstu deildnni í sumar.

Hann vann sér sæti í U-21 árs landsliðshópnum með góðri frammistöðu hjá Stjörnunni í sumar. Hannes sem er uppalinn Leiknismaður gekk til liðs við Stjörnuna fyrir tímabilið eftir eitt ár hjá Aftureldingu en hjá báðum þessum félögum var hann valinn bestur á lokahófi þeirra.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.